Sýnir færslur með efnisorðinu Líffræði - Mannslíkaminn. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Líffræði - Mannslíkaminn. Sýna allar færslur

Spurningar úr 2. - 4. kafla Mannslíkaminn (ekki þær í bókinni)

Spurningar úr 2. kafla
  1. Hver eru mikilvægustu næringarefni fæðunnar ?
      Kolvetni, fita, prótín, vítamín & steinefni
  2. Hvert er hlutverk meltingarinnar ?
      Sundra fæðunni svo smátt að hægt sé að taka næringuna í blóðið
  3. Hve langur er meltingarvegurinn ?
      Um 7 metrar
  4. Hvar eru ensím og hevrt er hlutverk þeirra ?
      Í munnvatninu, klippa stórar sameindir í smáar
  5. Hvað framleiðir maður mikið munnvatn á einum sólarhring ?
      1 lítra
  6. Úr hverju er kolvetni gert og hvaðan er ensímið sem klippir það niður ?
      Glúkósa, ensím úr munnvatnskirtlum og brisi
  7. Úr hverju er prótín gert og hvaðan er ensímið sem klippir það niður ?
      Anímósýrur, ensím úr maga og brisi
  8. í hvað sundrast fita og hvaðan er ensímið sem sundrar henni ?
      Glýseról og fitusýrur. Ensím úr brisi
  9. Hvaða næringarefnum þarf ekki að sundra ?
      Vítamínum, steinefnum og vatni
  10. Hvað gerir kokið ?
      Kemur kyngingu af stað og sendir fæðuna í vélindað. Blandar einnig munnvatni
  11. Hvaða hlutverk hefur barkaspeldið ?
      Það kemur í veg fyrir að fæða fari niður í barka. Það opnast hins vegar við öndun
  12. Hvað gerir Vélindað ?
      Það hefur sterka vöðva sem þrýstir fæðunni niður í maga
  13. Hvað gerir maginn ?
      Hnoðar fæðuna og blandar magasýru
  14. Hvað er í magasýru, nefndu tvennt og hvað gerir það ?
      Saltsýra, drepur bakteríur sem koma í magann. Pepsín, sundrar prótínum
  15. Hvar er skeifugörnin og hvað gerist þar ?
      Skeifugörnin er í efsta hluta smáþarmanna. Þar blandast fæðan safa frá brisinu og lifrinni
  16. Hvað gerir Brisið ?
      Framleiðir brissafa og spýtir í skeifugörnina
  17. Hvað gerir brissafi ?
      Vinnur gegn sýrunni sem kom úr magannum (saltsýrunni)
  18. Hvaða hlutverki gegnir lifrin í meltingunni ?
      Framleiðir gall og sendir í gallblöðruna
  19. Hvað gerir gallið ?
      Leysir upp fituna í þörmunum
  20. Hvað gerir gallblaðran ?
      Spýtir gallinu frá lifrinni í skeifugörnina
  21. Hvað gerist í smáþörmum, hvert er flatarmál þeirra og hvers vegna er það svo mikið ?
      Þar fer endanleg sundrun fæðunnar fram, yfir 250 m², á veggjum þarmanna eru þarmatotur sem stækka yfirborðið gríðarlega
  22. Hvað gerist í þarmatotunum ?
      Þar eru næringarefni tekin í blóðrásina
  23. hvað gerist í ristlinum ?
      Ristillinn tekur vatn og ýmis steinefni upp en þá þykknar innihaldið. Ristillinn hefur einnig bakteríur sem hjálpa til við lokameltinguna og framleiða vítamín
  24. Hve stór hluti af innihaldinu sem kemur í endaþarminn eru bakteríur ?
      1/3
  25. Hvað heita vöðvarnir sem þrýsta úrgangnum út um endaþarmsopið ?
      Kviðvöðvar
  26. Til hvers eru næringarefnin ?
      Þau eru notuð sem byggingarefni eða orka fyrir frumur
  1. Til hvers notum við glúkósa og hvað verður um þann glúkósa sem við þurfum ekki á að halda strax ?
      Sem orku. Auka glúkósa er breytt í glýkógen og geymdur til betri tíma í lifrinni og í vöðvum
  2. Hvað er fjölsykra ? Nefndu dæmi um fjölsykru
      stór sameind búin til úr mörgum einsykrum. Dæmi um fjölsykru er glýkógen
  3. Hvort hefur meiri orku, fita eða glúkósi ?
      Fita
  4. Hvar er fitan geymd ?
      Í fituvef undir húðinni og í kringum smáþarmana
  5. Til hvers þurfum við fitu ? Nefndu þrennt
      Fita verndar líffærin, er nauðsynleg fyrir frumur og inniheldur vítamín
  6. Hverjar eru þrjár gerðir fitu og hvaðan fáum við hverja gerð ?
      Mettuð fita, úr dýraríkinu. Fjölómettuð fita, úr plönturíkinu, smjörlíki & feitum fisk. Einómettuð fita, úr ólífuolíu og repjuolíu
  7. Flest prótínanna eru ensím en til hvers eru þau einnig notuð ? Nefna tvennt
      Til að byggja upp frumur og sem flutningaefni
  8. Hvað heitir prótínið sem flytur súrefni blóðsins ?
      Blóðrauði
  9. Hvað gera vítamín ?
      Þau taka þátt í efnahvörfum
  10. Nefndu 6 gerðir vítamína
      A-, B-, C-, D-, E-, & K-vítamín
  11. Nefndu 5 steinefni
      kalsín, fosfór, natrín, kalín, járn, sink, joð, selen og króm
  12. Hvers vegna kemur tannskemmd og hvernig lýsir hún sér ?
      Bakteríur sem lifa í munni og nærast á sykri mynda sýru sem gerir holu í tönnina
  13. Hvar er magamunninn og hvað gerir hann ?
      Milli vélinda og maga. Kemur í veg fyrir að fæðan fari aftur upp vélindað
  14. Hvers vegna kemur brjóstsviði og hvernig lýsir hann sér ?
      Magamunninn virkar ekki rétt. Súr magasafi kemur upp vélindað og veldur sviða
  15. Hvers vegna koma uppköst ?
      Veirur eða bakteríur stöðva hreifinguna í magavöðvanna. Vöðvar smáþarmann þrýsta þá fæðunni upp
  16. Hvers vegna koma magaverkir ?
      Slímhúð magans hefur orðið fyrir ertingu eða vöðvar maga eða smáþarma starfa óeðlilega
  17. Hvers vegna kemur magasár og hvernig lýsir það sér ?
      Eigin vörn magans virkar ekki gegn magasafanum og það kemur gat á slímhúð magans
  18. Hvers vegna kemur niðurgangur ?
      Ef vondu bakteríurnar eru fleiri en þær góðu
  19. Til hvers notum við súrefni ?
      Það er nauðsynlegt við brunann sem fer fram í frumunum
  20. Hvaða hlutverki gegna lungun ?
      Flytja súrefni í blóðið en losa líkamann við koltvíoxíð
  21. Hver er leið loftsins ofan í lungu ?
      Fyrst fer það gegnum nefholið og kokið. Svo í barkann sem skiptist í aðalberkjur sem leiða í sitt hvirt lungað. Frá aðalberkjunum liggja svo berkjur og frá þeim eru berklingar en á enda þeirra eru lungnablöðrurnar þar sem skipting á koltvíoxíð og   súrefni fer fram
  22. Hvar eru raddböndin og hvernig virka þau ?
      Í barkakýlinu. Þau eru slök þegar við öndum inn en ef við gefum frá okkur hljóð strekkist á þeim og þau titra
  23. Hvar er þindin og hvað gerir hún ?
      Fyrir neðan lungun. Þegar hún spennist niður draga lungun inn loft en þegar slaknar á henni þrýstist loft úr lungunum
  24. Hvar eru bifhárin og til hvers eru þau ?
      Í nefholi og berkjum. Þegar þau hreyfa sig flyst allt slím upp í kok og við hóstum eða hnerrum og komum því út
  25. Hvað gera æðarnar og slímkirtlarnir í nefholinu og berkjunum ?
      Hita loftið og auka raka þess
  26. Hver er algengasta sýking öndunarfæranna ?
      Kvef
  27. Af hverju stafar hálsbólga ? En kvef ? En lungnabólga ?
      Bakteríum, veiru, bakteríur sem komast í lungun
  28. Hvað eru afholur nefsins og hvað gerist ef sýking kemst þangað ?
      Holrúm sem tengjast nefholinu. Við verðum veik
  29. Af hverju stafar astmi ?
      Oftast af ofnæmi en það veldur krampa og bólgu í slímhúðinni en þá kemur meira slím í lungnaberkjunum og þær þrengjast svo erfitt verður að anda
  30. Hvaða afleiðingar hafa reykingar á bifhárin og hverjar eru afleiðingarnar ?
      Reykingar lama bifhárin svo meira slím er í berkjunum. Einnig komast veirur og bakteríur auðveldar að slímhúðinni.


Spurningar úr 3. kafla
  1. Hvert er hlutverk blóðrásarkerfisins ?
      Veita frumum líkamans súrefni og næringarefni en losa þær við úrgangsefni
  2. Hvert er hlutverk hjartans ?
      Dæla blóðinu
  3. Hvað er slagæð ?
      Æðarnar sem hjartað dælir blóðinu í gegnum
  4. Hvað er háræð ?
      Slagæðarnar greinast í minni háræðar
  5. Hvernig fara skiptin á úrgangsefnum og næringarefnum fram ?
      Í gegnum veggi háræðanna
  6. Hvað er bláæð ?
      Æðarnar sem háræðarnar sameinast í og flytja súrefnissnauða blóðið til hjartans
  7. Hvert dælir hægri helmingur hjartans blóði ?
      Í litlu hringrásina, gegnum lungun og til vinstri helmings hjartans með súrefnisríkt blóð
  8. Hver er leið stóru hringrásinnar ?
      Frá vinstri helming hjartans og gegnum ósæðina. Þaðan í gegnum smáþarmana þar sem næringarefnum er dreift og úrgangsefni tekin. Svo fer blóðið í lifrina þar sem sum næringarefni eru geymd. Svo fer blóðið með úrgangsefnunum til nýranna sem losa þau burt með þvagi.
  9. Hvers vegna stýrir líkaminn blóðstreyminu ?
      Til þess að líffærin sem þurfa mest á súrefni að halda á hverjum tíma fái mest súrefni
  10. Hvað heita 4 hólf hjartans
      hægri gátt, vinstri gátt, hægra hvolf, vinstra hvolf
  11. Hvort fer súrefnissnauða blóðið til lungnanna frá vinstra eða hægra hvolfi ?
      Hægra
  12. Hvar eru hjartalokurnar og hvert er hlutverk þeirra ?
      Milli gátta og hvolfa, koma í veg fyrir að blóðið streymi aftur til baka
  13. Hvar eru slagæðalokurnar og hvenær opnast þær ?
      Milli hvolfa og slagæða, þær opnast þegar blóðinu er dælt úr hvolfunum
  14. Hvor vöðvaveggurinn er sterkari í hjartanu og hvers vegna ?
      Vinstri, sá helmingur dælir í stóru hringrásina en þá þarf meira afl
  15. Hvað dælir hjartað mörgum lítrum á mínútu ti líkamans ?
      5 lítrum
  16. Hvar eru kransæðarnar og hvert er þeirra hlutverk ?
      Á hjartanu, gefa því næringu og súrefni
  17. Af hverju þrennu ræðst blóðþrýstingur ?
      Hversu hratt hjartað slær, magni blóðs í hverju slagi & viðnámi æða
  18. Hvað er vöðvadæla ?
      Þegar vöðvar líkamans hjálpa blóðinu að komast aftur til hjartans með því að þrýsta upp á við
  19. Á hverju byggist þol ?
      Hve mikið súrefni vöðvarnir geta tekið til sín og hve súrefnisríku blóði hjartað dælir
  20. Hvað slær hjartað oft á mínútu við 1. áreynslu 2. hvíld
      áreynsla = 200 sinnum hvíld = 70 sinnum
  21. Hvað hefur fullorðinn maður mikið af blóði ?
      4 til 6 lítra
  22. Hvað skiptist innihald blóðsins í ?
      blóðvökva og blóðfrumur
  23. Úr hverju er blóðvökvi ?
      Mestu leiti úr vatni en einnig steinefni, prótín og hormón
  24. Hvað heita 3 gerðir blóðfruma ?
      Hvítkorn, rauðkorn og blóðflögur
  25. Hvar myndast blóðfrumurnar og hvað heitir fruman sem þær myndast af ?
      Í beinmergnum, blóðstofnfruma
  26. Hvar fer sérhæfing frumanna fram ?
      Í hóstakirtlinum
  27. Hvað heitir gerðin af blóðfrumum sem eru flest ?
      Rauðkorn
  28. Hvað heitir prótínuð sem rauðkornin hafa og hvert er hlutverk þess ?
      Blóðrauði, bindir súrefni og flytur um líkamann
  29. Hvert er hlutverk blóðflaga og hvernig gera þau það ?
      Græða sár, festast saman og mynda fíngert net
  30. Hvar eru hvítkorn og hvert er hlutverk þeirra ?
      Í vefjum líkamans og í blóðinu. Vernda okkur gegn sjúkdómum
  31. Hvað geyma vessaæðarnar, hvar eru þær og hvað gera þær ?
      Þær geyma vessa. Þær eru alls staðar í líkamanum. Þær taka blóðvökvann í vefjum og skila aftur í blóðrásina
  32. Hvar eru eitlarnir helst, hvað er undarlegt við þá og hvert er þeirra hlutverk ?
      Í handarkrikum, nárunum og á hálsi. Þeir hafa óvenjumörg hvítkorn. Þar sem svo mörg hvítkorn eru þar eru þeir stór hluti ónæmiskerfisins
  33. Hvað er átfruma og hvað gerir hún ?
      Ein gerð hvítkorna, átfrumur ráðast á bakteríur og éta þær þar til þær sjálfar springa
  34. Hvað eru T & B-frumur og hvernig vinna þær saman ?
      Aðrar gerðir hvítkorna, T-frumur finna ef eitthvað er rangt og gefa þá B-frumunum merki um að framleiða mótefni
  35. Á hverju byggist bólusetning og hvernig virkar hún ?
      Minni ónæmiskerfisins. Óvirku smitefni er sprautað inn í líkamann svo myndun mótefna fari af stað
  36. Hvað gerist ef manni er gefin vitlaus gerð af blóði ?
      Kekkir geta myndast og það er lífshættulegt
  37. Hverjir eru blóðflokkarnir 4 ?
      O, A, B & AB
  38. Til hvers eru hlustpípur notaðar ?
      Til þess að hlusta á hjartað og ganga úr skugga um að lokurnar starfi eðlilega
  39. Til hvers er hjartarafrit notað ?
      Til að greina sjúkdóma. Mynstur rafboða breytist í mörgum hjartasjúkdómum
  40. Hvernig er hægt að greina sjúkdóma með blóðprufu ?
      Samsetnig blóðsins breytist þegar við veikjumst
  41. Hvernig lýsir blóðskortur sér ?
      Þá er járnskkortur en það orsakar lágt blóðrauðagildi
  42. Hvað er hvítblæði og hvernig er hægt að greina það ?
      Þá fjölga hvítkornin sér stanslaust, hægt að greina með prófi á blóði & beinmerg
  43. Hver er venjulegur blóðþrýstingur hjá fullorðnum ?
      Um 120/80. hærri talan er þrýstingurinn þegar hjartað dregst saman en hin talan sýnir þrýstinginn í hvíld
  44. Hvers vegna er háþrýstingur alvarlegur ?
      Of hár blóðþrýstingur getur skemmt æðar og hjarta
  45. Hvers vegna er lágþrýstingur alvarlegur ?
      Getur valdið sorta fyrir augun, svima og yfirliði
  46. Hvað veldur losti ?
      Mikill blóðmissir eða ofnæmisviðbrögða þar sem æðarnar víkka snögglega og blóðþrýstingur lækkar
  47. Hvernig lýsir lost sér ?
      Maður náfölnar, verður kalt og getur misst meðvitund
  48. Hvað er æðakölkun og hvers vegna er hún alvarleg ?
      Þegar kalk og fita sest inn á æðarnar. Eykur hættu á blóðtöppum sem stífla æðarnar. Einnig fær maður verk í hjartað ef kölkun verður í kransæðum
  49. Hvað veldur hjartaáfall ?
      Ef ein eða fleiri kransæðar stíflast skemmist sá partur hjartans vegna súrefnisskorts
  50. Hver er munurinn á heilablóðfalli og heilablæðingu ?
      Heilablóðfall er blóðtappi sem stíflar æð í heila en heilablæðing er æð sem opnast svo það verður blæðing í vefi umhverfis
  51. Hvers vegna á veikt fólk ekki að reyna mikið á sig ?
      Það eykur hættu á hjartavöðvabólgu
  52. Hvað er hjartavöðabólga ?
      Þegar veiru- eða bakteríusýking kemst til hjartans
  53. Af hverju stafar ofnæmi ?
      Hvítkorn bregðast of harkalega við og láta frá sér efni sem valda bólgu eða öðru
  54. Hvað gerist þegar ónæmiskerfið greinir ekki rétt á milli þess sem er eðlilegt og óeðlilegt ?
      Þá ráðast varnarfrumur á eigin frumur
  55. Nefndu 2 dæmi um sjúkdóma sem koma vegna þessa ^
      Sykursýki & Gigt
  56. Hvaða líffæri losar koltvíoxíð úr líkamanum ?
      Lungun
  57. Hvaða líffæri losa meginhluta úrgangsefna úr líkamanum ?
      Nýru og lifur
  58. Hvaða hlutverk hafa nýrun og hvernig starfa þau ?
      Hreinsa blóðið. Þau sía úrgangsefni og vatn úr blóðinu. Skila meginhluta vatnsins aftur í blóðið. Senda það sem eftir er (þvagið) í þvaðblöðruna gegnum þvagpípurnar þar sem það er geymt.
  59. Hvaða hlutverki gegnir hringvöðvinn ?
      Þegar slaknar á honum rennur þvagið út um þvagrásina
  60. Hvernig hafa nýrun áhrif á blóðþrýstinginn ?
      Þau sleppa mismiklum vökva út með þvagi en magn vökva í líkamanum hefur áhrif á blóðþrýsting
  61. Þegar þvagpróf eru tekin er hægt að greina sjúkdóma. Hvaða sjúkdómur er ef bakteríur eru í þvaginu ? En sykur ? En prótín ?
      Bakteríur = sýking í þvagfærum, sykur = sykursýki, prótín = nýrnasjúkdómar
  62. Hvað eru nýrnasteinar og hvernig er hægt að taka þá ?
      Steinar sem myndast í nýrunum. Hægt að brjóta þá með hljóðbylgjum
  63. Til hvers eru gervinýru ?
      Ef nýrnabilun verður eru gervinýru notuð til þess að hreinsa blóðið
  64. Hvert er stærsta innra líffæri mannsins og hvað vegur það í fullornum manni ?
      Lifrin, 1,5 kg
  65. Hvað gerir lifrin ?
      Fjarlægir skaðleg efni, framleiðir gall, brýtur blóðrauða niður, geymir orkurík efni
  66. Hver er helst ástæða lifrarskaða ?
      Áfengisneysla
  67. Hvað er skorpulifur ?
      Þá hættir lifrin nánast að starfa
  68. Hvað veldur lifrarbólgu og hvað gerist ef maður fær lifrarbólgu ?
      Sýklar. Maður fær verki og gulu. Gula er þegar ýmis litarefni verða eftir í blóðinu og þá verður húðin gulleit
Spurningar úr 4. kafla
  1. Hvað vegur húðin á fullorðnum manni og hvert er flatarmál hennar ?
      Um 5 kg. 1,5 – 2 m²
  2. Nefndu 3 hlutverk húðarinnar
      vernda líkamann, skynja sársauka & stjórna líkamshitanum og vökvajafnvægi
  3. Hver eru 3 lög húðarinnar (segja eftir hvert er yst) ?
      Húðþekjan, leðurhúðin & undirhúðin
  4. Hvað er hornlagið og úr hverju er það ?
      Allra ysti partur húðþekjunnar, það er úr dauðum húðfrumum úr hyrni
  5. Hvert er hlutverk hornlagsins, nefndu tvennt ?
      Gerir húðina vatnshelda, verja gegn veirum og bakteríum
  6. Hvar er vaxtarlagið og hvað gerir það ?
      Í húðþekjunni, myndar nýjar frumur fyrir hornlagið
  7. Hvað lifir hver hornlagsfruma lengi áður en hún flagnar af ?
      4 vikur
  8. Hvaða starf hafa litfrumurnar í húðinni ?
      Vernda erfðaefnið í frumukjörnunum gegn geislum sólar
  9. Hvers vegna koma freknur ?
      Þegar litarefnið dreifist misjafnt í húðinni
  10. Hvers vegna er leðurhúðin teygjanleg og hvað minnkar teygjanleikann ?
      Vegna teygjanlegra þráða sem eru þar. Elli, reykingar og sólböð
  11. Nefndu 2 gerðir af kirtlum sem eru í leðurhúðinni og til hvers þeir eru
      Fitukirtlar, smyrja og mýkja húðina. Svitakirtlar, jafna líkamshitann
  12. Hvað geymir undirhúðin helst ?
      Lang mest fitu en einnig vatn
  13. Úr hvaða efni eru neglur og hár ?
      Hyrni
  14. Hvað lengjast neglur mikið á viku og hvað hár marga cm á mánuði?
      Neglur vaxa 0,5 – 1 mm á viku. Hár vex um 1 cm á mánuði
  15. hvað missir maður mörg hár á dag ?
      Um 100
  16. hvað ákvarðar lit hársins og hvort það sé krullað eða slétt
      litarefni í hárrótinni ákvarðar lit en lögun hársekkjanna ákvarðar krull
  17. Hvernig stjórnar svitinn líkamshitanum
      þegar svitinn gufar upp tekur hann varma með sér
  18. hvað myndast mikill sviti á sólarhring ?
      1 lítri, en mikið meira ef við reynum á okkur
  19. Hvernig taka æðarnar þátt í líkamshitastjórnun ?
      Þær víkka við hita en þá fer meira blóð um húðina og líkaminn losar sig við hita
  20. Hvernig myndast bólur ?
      Fitukirtlar lokast vegna tappa
  21. Af hverju stafar exem ?
      Bólgu í húðinni
  22. Hvað er sortuæxli og hver er algengasta orsök þess ?
      Hættulegasta tegund húðkrabba. Of mörg sólböð
  23. Hvað gerist ef leðurhúðin skaddast ?
      Þá getur maður misst vökva og hætta er á sýkingu
  24. Hvað eru mörg bein í beinagrindinni ?
      Rúmlega 200
  25. Hve mikill hluti líkamsþyngdarinnar er beinagrindin ?
      Um fimmtungur
  26. Hver eru aðalhlutverk beinagrindarinnar ?
      Vernda mikilvæg líffæri og halda okkur uppréttum
  27. Hvaða mikilvægu steinefni eru geymd í beinunum ?
      Kalk & fosöt o.fl
  28. hvað kallast löng og pípulaga bein ?
      Leggir
  29. hvar má finna flöt bein ? Nefndu 3 staði
      herðarblöðum, mjöðm og höfuðkúpu
  30. hvers konar bein eru í úlnliði og handarbaki ?
      Stutt, teningslaga bein
  31. nefndu bein með óreglulega lögun
      hryggjarliðir
  32. Hvað veldur því að beinin eru bæði létt og sterk ?
      Þau eru hörð að utan en mjúk að innan
  33. Nefndu beinmergana tvo í beinunum og sérkenni þeirra
      rauði beinmergurinn, þar myndast allar blóðfrumur. Guli beinmergurinn er að mestu bara fita
  34. Hvað er beinhimnan og hvað er að finna í henni ?
      Himna í kringum beinin sem hefur taugar og æðar sem sjá beininu fyrir næringarefnum
  35. hvað endurnýjast mikill hluti af beinagrindinni á ári ?
      1/10
  36. Til hvers eru liðir og hvar eru þeir ?
      Þeir eru á milli beina, gera þeim kleift að hreyfast hvort á móti öðru
  37. Hvers vegna er ekki stíft að hreyfa liðina ? Nefndu tvennt
      Endar beinanna eru klæddir verndandi brjóski og liðurinn smyr núningsfletina
  38. nefndu þrjár gerðir liða og einkenni þeirra
      kúluliður, beinin hreyfast í allar áttir. hjöruliður, beinin hreyfast eins og hjarir. Hverfiliður, beinin snúast hvort gegn öðru
  39. Hvað þarf að gera ef bein brotnar ?
      Setja gifs en stundum jafnvel negla saman
  40. Hvað eru margir hryggjarliðir í hryggnum ?
      Rúmlega 30
  41. Hvað er milli hryggjarliðanna og til hvers ?
      Hryggþófar, þeir gefa eftir við högg og álag. Gera hrygginn sveigjanlegan
  42. Hvað gerist við hryggþófana ef við lyftum of miklu ?
      Þeir geta gengið út milli liða og þrýst á taug sem veldur verkjum
  43. Hvernig gera vöðvarnir okkur kleift að hreyfa okkur ?
      Þeir ýmist dragast saman og slakna
  44. Hve mikill hluti eru vöðvarnir af líkamsþyngdinni ?
      Um helmingur
  45. Hverjar eru þrjár gerðir af vöðvum og nefndu 2 sérkenni á hverja gerð
      Rákóttir vöðvar, við getum stjórnað þeim og þeir eru fastir bein með sinum. Sléttir vöðvar, við getum ekki stjórnað þeim og þeir geta haft áhrif á blóðþrýstinginn með því að víkka eða þrengja æðar. Hjartavöðvi, við getum ekki stjórnað honum og hann myndar sjálfvirk rafboð til þess að stjórna samdrætti hjartans
  46. Hvað heita rákóttu vöðvarnir sem hreyfa liðamót og vinna alltaf saman ?
      Beygjuvöðvar og réttivöðvar
  47. Úr hverju eru rákóttir vöðvar ?
      Vöðvaþráðum í vöðvaknippi
  48. Hvernig dragast vöðvarnir saman ?
      Í vöðvaþráðunum eru grannir próteinþræðir sem geta dregist saman
  49. Hvað mælir þol ?
      Hve lengi vöðvar okkar geta starfað
  50. Á hverju byggist þolið ?
      Helst hve mikið súrefni vöðvarnir geta tekið upp en einnig hve súrefnisríku blóði hjartað dælir
  51. Hvað gerist í vöðvunum við þjálfun ?
      Hvatberum fjölgar en þar fer bruninn fram
  52. Hvað er mjólkursýra ?
      Sýra sem myndast í vöðvunum en þá súrna vöðvafrumurnar
  53. Hvenær koma harðsperrur ?
      Þegar vöðvarnir hafa unnið mikið lengi
  54. Hvað gerist þegar maður fær harðsperrur ?
      Þá skaddast vöðvafrumurnar tímabundið og maður fær verk vegna efna sem fara úr skemmdu frumunum og erta taug

Glósur úr Mannslíkaminn


Glósur
Mannslíkaminn 1. kafli

Sérhæfðar Frumur
  • Allar lífverur eru gerðar úr frumum
  • Sumar lífverur eru bara 1 fruma
  • Mannslíkaminn er gerður úr tugÞúsundum milljarða fruma
  • Frumur fá orku með bruna/frumuöndun en Það gerist í hvatberum frumunnar
    • glúkósi + súrefni → koltvíoxíð + vatn + orka
  • Frumur eru með frumulíffæri sem gegna hvert sínu hlutverki en frumukjarninnstjórnar nær öllu og inniheldur erfðaefnið sem ákveður hvernig fruman starfar
  • Frumuhimnan stjórnar hvað fer inn og út um frumuna
  • Leysikorn eru hreinsistöðvar frumunnar og þar eru öll úrgangsefni flokkuð
  • Í lífverum sem gerðar eru úr mörgum frumum gegna frumurnar ólíkum hlutverkum
  • Frumur af sömu gerð mynda vefi. Vefirnir mynda svo mismunandi líffæri
  • Stofnfrumur er upprunalegar frumur. þær mynda alla vefi & líffæri og af Þeim myndast sérhæfðar frumur
  • Frumur lifa mislengi en Þær fjölga sér með skiptingu
  • þegar frumur byrja að fjölga sér stjórnlaust myndast æxli sem er krabbamein. Til eru yfir 200 gerðir af krabbameini og Það getur breiðst um allan líkamann

Líffærin Starfa Saman
  • Mismunandi frumur og líffæri verða að starfa saman
  • Líffærakerfi er Þegar nokkur líffæri sjá um ákveðið verk. T.d. meltingarkerfi
  • Til Þess að vinna saman senda frumurnar boð á milli sín til annarra parta í líkamannum með boðefnum sem berast með blóðinu og kallast hormón
  • Öll líffærakerfin hafa áhrif hvort á annað og laga sig að Þörfum líkamans


    Glósur
    2. kafli

    Næringarefnin verða að komast inn í frumurnar
    • Mikilvægustu næringarefni fæðunnar eru kolvetni, fita, prótín, vítamín & steinefni
    • Meltingin sundrar fæðunni í svo smáar sameindir að hægt sé að taka Þær í blóðið og flytja Þær til frumna líkamans
    • Meltingarvegurinn er u.Þ.b. 7 metra langur
    • Ensím
      • eru í munnvatninu
        • 1 sólahringur = 1 lítri af munnvatni
      • klippa stórar sameindir í smáar
    • Kolvetni
      • fullt af glúkósa fast saman
        • ensím klippa niður
    • Prótín
      • margar anímósýrur sem eru fastar saman
        • ensím klippa niður
    • Fita
      • sundrast niður í glýseról & fitusýrur
    • Vítamín, Steinefni & vatn
      • það Þarf ekki að sundra Þeim
    • Kok
      • kemur kyngingu af stað í vélindað
    • Barkaspeldi
      • kemur í veg fyrir að fæða fer niður barkann
      • opnast við öndun
      • lokast við át
    • Vélinda
      • hefur sterka vöðva sem Þrýsta fæðunni niður í maga
    • Maginn
      • hnoðar fæðuna
      • blandar magasýru
        • saltsýra og pepsín (ensím)
      • maturinn fer næst í skeifugörn
    • Saltsýra
      • drepur bakteríur sem koma í magann
      • slímhúð magans verndar hann gegn saltsýrunni
    • Pepsín
      • sundrar prótínum
    • Skeifugörn
      • er fremsti hluti smáÞarmanna
      • fær safa frá lifrinni og brisinu
    • Brisið
      • framleiðir brissafa
        • inniheldur mörg ensím
        • vinnur líka gegn sýrunni sem kom úr maganum
    • Lifrin
      • framleiðir gall
        • leysir upp fituna í Þörmunum
    • Gallblaðra
      • fær gall frá lifrinni
      • spýtir í skeifugörninna
    • SmáÞarmar
      • margir metrar
      • sundra næringarefnum alveg (100%)
      • yfirborð Þeirra er yfir 250 fermetrar
    • þarmatotur
      • eru á veggjum smáÞarmanna
      • innihalda æðar sem taka upp næringarefnin og flytja til frumna líkamans
    • Ristill
      • tekur vatn og ýmis steinefni upp
        • innihald ristilsins Þykknar
      • inniheldur bakteríur
        • hjálpa við lokameltinguna
        • framleiða vítamín
    • EndaÞarmur
      • Þriðjungur innihaldsins er bakteríur
      • kviðvöðvarnir Þrýsta úrganginum út um endaÞarmsopið

    Til hvers notum við fæðuna ?
    • Næringarefni eru notuð sem byggingarefni eða orka fyrir frumur
    • Glúkósi er orka fyrir frumur
    • Ef frumurnar Þurfa ekki á glúkósanum að halda er honum breytt í glýkógen sem er fjölsykra og geymdur
      • geymist í lifur og vöðvum
    • Fjölsykra er stór sameind úr mörgum einsykrum
    • Fita
      • Fita hefur meiri orku en glúkósi
      • Fitan er geymd í fituvef
        • undir húðinni og við smáÞarma
      • verndar líffærin
      • nauðsynleg fyrir frumur
      • inniheldur vítamín
    • þrjár gerðir fitu
      • mettuð fita
        • úr matvælum úr dýraríkinu
      • fjölómettuð fita
        • úr plönturíkinu
      • einómettuð fita
        • úr ólífuolíu og repjuolíu
        • hún er hollust



    • Prótín
      • Frumur smíða sín eigin prótín úr amínósýrum sem fást úr prótínum
      • Hvert prótín gegna sínu hlutverki
      • Flest prótínanna eru ensím
      • notuð sem byggingarefni
      • taka Þátt í flutningi efna
      • prótínið sem flytur súrefni blóðsins heitir blóðrauði
    • Vítamín
      • líkaminn Þarf ekki mikið af vítamínum
      • eru nauðsynleg
      • taka Þátt í efnahvörfum
      • t.d. A-, B-, C-, D-, E- og K-vítamín
    • Steinefni
      • t.d. kalsín, fosfór, natrín, kalín, járn, sink, joð, selen og króm
      • hvert steinefni hefur hlutverk

    Meltingarkvillar
    • Tannskemmdir
      • bakteríur í munninum nærast á sykri og mynda sýru
      • sýran tærir glerunginn og Þá kemur hola í tönnina
      • blæðandi tannhold stafar af bakteríum sem ráðast á tannholdið
    • Magamunni
      • milli vélinda og maga
      • opnast Þegar fæðan kemur en lokast til Þess að hún fari ekki aftur upp
    • Brjóstsviði
      • stafar af óeðlilegum magamunna
        • súr magasafi fer upp í vélindað og veldur sviða
    • Uppköst
      • stafar af veirum eða bakteríum sem stöðva hreyfingu magavöðvanna
      • vöðvar smáÞarma og maga Þrýsta innihaldi magans upp
    • Magaverkir
      • getur stafað af Því að slímhúð magans hefur orðið fyrir ertingu eða vöðvar maga eða smáÞarma starfa óeðlilega
      • magasár
        • er gat í slímhúðinni
        • eigin vörn magans virkar ekki gegn magasafanum
    • Niðurgangur
      • ef vondu bakteríurnar eru fleiri en góðu bakteríurnar veldur Það niðurgangi
      • í útlöndum eru nýjar vondar bakteríur sem við erum óvön
      • sýklalyf drepa líka góðu bakteríurnar
      • mjólkurvörur eru með margar góðar bakteríur

    Leið súrefnis úr andrúmslofti til frumna
    • Súrefni er notað við brunann sem fer fram í frumum
      • glúkósi ---> koltvíoxíð og vatn ---> orka
    • Lungun
      • flytur súrefni í blóðið
      • losar líkamann við koltvíoxíð
    • Leið loftsins
      • nefholið og kokið
      • barkinn
      • aðalberkjur
        • liggja í sitt hvort lungað
      • berkjur
      • berklingar
      • lungnablöðrur
        • 0,5 mm í Þvermál
        • taka súrefni og láta frá sér koltvíoxíð um leið
    • Raddbönd
      • eru í barkakýlinu
      • raddböndin eru slök Þegar við öndum inn
      • Þegar við gefum frá okkur hljóð strekkist á raddböndunum og Þau titra
    • þindin
      • Þunnur vöðvi
      • mikilvægur við öndun
      • veldur Því að rúmmál lungna breytist
        • Þau draga inn loft eða Þrýsta Því út
      • Þegar hún spennist niður draga lungun inn loft
      • Þegar hún slaknast Þrýstist loft úr lungunum

    Öndunarfærin – varnir og sjúkdómar
    • Nefhol og berkjur
      • er með bifhærðri slímhúð
        • bifhárin hreinsa öndunarloftið
          • hreyfa sig og flytja slím upp í kok
        • slímhúðin hefur hvítkorn sem ráðast á vondar bakteríur
        • ef slímhúðin verður fyrir ertingu hnerrum við eða hóstum
      • æðar og slímkirtlar hita loftið og auka raka Þess
    • Algengasta sýking öndunarfæra er kvef
      • stafar af veiru
    • Hálsbólga stafar af bakteríum
    • Lungnabólga er ef bakteríur fara í lungun
    • Afholur nefsins eru holrúm sem tengjast nefholinu
      • ef sýking kemst í slímhúð afholanna bólgnar hún og við verðum veik
    • Astmi
      • stafar oftast af ofnæmi
      • veldur bólgu og krampa í lungnaberkjunum og Þær Þrengjast
        • slímhúði bólgnar og Þá er meira slím
        • erfitt verður að anda
    • Reykingar
      • lama bifhár
      • meira slím myndast í berkjum
      • veirur og bakteríur komast auðveldlegar að slímhúðinni
    • lungnakrabbamein orsakast nær alltaf af reykingum


Glósur
3. kafli

Blóðrás líkamans
  • Blóðrásarkerfið sér um að veita frumum líkamans súrefni og næringarefni en losa Þær við úrgangsefni
  • Hjartað dælir blóðinu
    • gegnum slagæðar
      • Þær greinast í minni æðar sem enda í háræðum
        • skipti á næringarefnum og úrgangsefnum fara í gegnum veggina
        • Þær sameinast svo í bláæðar sem flytja súrefnissnautt blóð til hjartans
  • Hægri helmingur hjartans dælir súrefnissnauðu blóði í litlu hringrásina
    • liggur gegnum lungun og svo í vinstri helming hjartans með súrefnisríkt blóð
  • Stóra hringrásin fer frá vinstri helming hjartans gegnum ósæðina
    • taka til sín úrgangsefni
    • láta frá sér næringarefni til frumanna
  • Bláæðarnar flytja súrefnissnauða blóðið í holæðar sem liggja að hægri helming hjartans
  • Háræðarnar í veggjum Þarmanna dreifa næringarefnum um líkamann
    • svo liggur leiðin í gegnum lifrinna og Þar eru sum næringarefni geymd
  • Blóðið með úrgangsefnunum fer um nýrun og eru Þar losuð út með Þvagi
  • Líkaminn getur stýrt blóðstreyminu eftir hvaða líffæri Þurfa mest á Því að halda
  • Hjarta
    • 4 hólf
      • 2 gáttir (hægri og vinstri)
      • 2 hvolf (hægra og vinstra)
    • hægri = blár vinstri = rauður
    • hjartalokur eru á milli hvolfa og gátta
      • koma í veg fyrir að blóðið streymi aftur til baka
      • slagæðalokur eru á milli hvolfa og slagæða
        • opnast Þegar blóðinu er dælt úr hvolfunum
    • vöðvaveggur vinstra hvolfsins er öflugri en hægra
      • frá vinstra hvolfinu liggur stóra hringrásin og Þar Þarf meira afl
    • hjartað dælir 5 lítrum á mínútu til líkamans
      • getur dælt allt að 40 lítrum á mínútu í hjarta vel Þjálfaðs íÞróttamanns
    • kransæðar gefa hjartanu næringu og súrefni
      • eru á hjartavöðvanum
  • blóðÞrýstingur
    • ræðst af
      • hversu hratt hjartað slær
      • hve miklu blóði er dælt út í hverju hjartaslagi
      • viðnámi í æðum
    • líkaminn stjórnar honum sjálfkrafa
  • Vöðvadæla
    • vöðvar líkamans hjálpa blóðinu að komast aftur til hjartans
  • þol
    • mælir hve lengi vöðvar geta starfað
    • byggist helst á Því hversu mikið súrefni vöðvarnir geta tekið til sín
    • líka hve súrefnisríku blóði hjartað dælir
    • hjartað slær 70 sinnum á mínútu við hvíld en 200 sinnum við áreynslu
      • rúmlega fjórfalt magn af blóði við áreynslu

Blóðið og ónæmiskerfið
  • Fullorðinn maður hefur 4 til 6 lítra f blóði
  • Blóðið skiptist í blóðvökva & blóðfrumur
    • blóðvökvi
      • er rúmur helmingur blóðsins
      • Getur lekið úr háræðunum til vefja
      • er að mestu úr vatni
        • þó eru líka steinefni, sykur, prótín og ýmis hormón
    • Blóðfrumur
      • Skiptast í rauðkorn, hvítkorn og blóðflögur
      • Myndast í rauða beinmergnum
      • Myndast allar af sömu upphaflegu frumunni (Blóðstofnfrumu)
      • Sérhæfing frumanna fer fram í hóstakirtli
        • Rauðkorn
          • eru flest
          • Þunnar & kringlóttar
          • Inniheldur prótín sem bindir súrefni og flytur um líkamann
            • kallast blóðrauði
              • inniheldur járn
              • binst koleinoxíð fastar en súrefni og Það er slæmt
        • Blóðflögur
          • Græða sár
            • festast saman
            • mynda fíngert net úr fíbrín sem rauðkornin festast í
              • blæðing stöðvast og blóðið storknar
        • Hvítkorn
          • eru hluti af ónæmiskerfinu
            • vernda okkur gegn sýkingum
          • Vega meira en 2kg í fullorðnum manni
          • Eru ekki öll í blóðinu
            • mörg Þeirra fara í eftirlitsferðir inn á milli frumna í vefjum
          • eru minnug og muna Þá eftir veirum og bakteríum og hvernig á að verjast Þeim
  • Vessaæðar geyma vessa
    • Vessaæðar eru mikilvægur hluti ónæmiskerfisins
    • eru alls staðar í líkamanum
    • vessinn fer í gegnum eitlana
    • tekur upp blóðvökvann í vefjum og skilar aftur í blóðið
  • Eitlar geyma óvenju mörg hvítkorn
    • eru t.d. í handarkrikum, nárunum og hálsinum
    • eitlarnir verða aumir og Þrútnir Þegar hvítkornin Þar verða önnum kafin
      • t.d. hálsbólga
  • Átfrumur ráðast á
    • átfrumur er ein gerð hvítkorna
    • er fyrst á vettvang Þegar bakteríur komast inn í líkamann
    • éta bakteríur upp til agna Þar til Þær springa sjálfar og Þá kemur gröftur
  • T & B-frumur
    • eru aðrar gerðir hvítkorna
    • T-frumur
      • finna út hvað er eðlilegt og hvað ekki
      • Gefa B-frumum merki ef Þær sjá eitthvað óeðlilegt
    • B-frumur
      • Framleiða mikið magn mótefna
        • mótefnin festast við veggi bakteríanna en Það auðvelda átfrumunum að ná taki á Þeim
  • Bólusetning
    • byggist á minni ónæmiskerfisins
    • óvirku smitefni er sprautað inn í líkamann svo sjúkdómurinn kemur ekki en myndun mótefna fer hins vegar fram
    • þegar við smitumst svo í alvöru man ónæmiskerfið hvernig á að verjast
    • Einnig er hægt að fá sprautu með mótefnum í sumum löndum sem verndar í nokkrar vikur
  • Blóðflokkar & Blóðgjöf
    • Blóðgjöf er Þegar manni er gefið blóð
    • Ef öðruvísi gerð af blóði er gefin heldur en gerðin sem maður er sjálfur með geta myndast kekkir og Það er lífshættulegt
    • Blóðflokkarnir eru O, A, B & AB
      • O getur gefið öllum blóð og AB getur fengið blóð frá öllum en venjulega er alltaf gefið úr sama blóðflokki

Sjúkdómar í blóði og hjarta
  • Læknar hlusta á hjartað með hlustpípu og hjartarafriti
    • Með hlustpípu kemst maður að hvort lokurnar starfi eðlilega
    • Mynstur rafboða breytist í mörgum hjartasjúkdómum og með hjartarafriti er hægt að greina Þá
  • Með blóðprufu er hægt að uppgötva marga sjúkdóma
    • Samsetning og eiginleikar blóðsins breytist Þegar við veikjumst
    • T.d. ef blóðsykurinn er of hár er um sykursýki að ræða
    • Blóðskortur er Þegar járnskortur er og Það orsakar lágt blóðrauðagildi
      • Blóðrauðagildi er mælikvarði á magn blóðrauðans í blóðinu
    • Ef gildið fyrir sökk er of hátt getur Það bent til sjúkdóms
  • Hvítblæði er Þegar hvítkornin fjölga sér stjórnlaust
    • Greint með prófi á blóði og beinmerg
    • Má lækna með lyfjum eða beinmergsgjöf
  • Venjulegur blóðÞrýstingur hjá fullorðnu fólki er um 120/80
    • Hærri talan sýnir Þrýsting Þegar hjartað dregst saman en hin í hvíld
    • HáÞrýstingur er of hár blóðÞrýstingur og er Það algengt
      • Getur skemmt æðar og hjarta
    • LágÞrýstingur er of lágur blóðÞrýstingur
      • Getur valdið sorta fyrir augun, svima og yfirliði
        • Heilinn fær of lítið blóð í eitt augnablik
  • Mikill blóðmissir getur valdið losti
    • Of lítið blóð er í æðunum til að blóðÞrýstingur sé eðlilegur
    • Maður náfölnar og verður kalt og getur misst meðvitund
    • Meðhöndlað með Því að gefa vökva sem eykur rúmmál blóðsins
    • Lost getur líka verið að völdum ofnæmisviðbragða
      • Æðarnar víkka snögglega og blóðÞrýstingur lækkar
  • Æðakölkun er Þegar fita og kalk sest inná veggi æðanna svo Þær verða Þröngar og missa teygjanleika
    • Orsakast m.a. Af reykingum, háum blóðÞrýsting og mikilli blóðfitu
    • Ef kölkun verður í kransæðum fær hjartað of lítið súrefni og Þá myndast verkur
    • Æðakölkun eykur hættu á blóðtöppum sem stífla æðar
  • Ef ein eða fleiri kransæð stíflast fær maður hjartaáfall
    • Hluti hjartans skemmist vegna súrefnisskorts
  • Slag er eitt orð yfir heilablóðfall og heilablæðingu
    • Heilablóðfall er ef blóðtappi stíflar æð í heila
    • Heilablæðing stafast af æð sem opnast í heila og veldur blæðingu í vefi umhverfis
  • Veikt fólk á ekki að reyna á sig Því Það eykur hættu á hjartavöðvabólgu
    • Hjartavöðvabólga er Þegar veiru- eða bakteríusýkingar komast til hjartans
    • Getur leitt til breytinga á takti hjartsláttar
  • Ofnæmi stafar af Því að hvítkornin bregðast harkalega við og láta frá sér efni sem valda bólgu og öðrum einkennum
  • þegar ónæmiskerfið bregst Þannig við að Það greinir ekki milli Þess sem er eðlilegt og óeðlilegt ráðast varnarfrumur á eigin frumur
    • Sykursýki og gigtarsjúkdómar eru dæmi um Það
      • Ónæmiskerfið eyðileggur frumur sem framleiða insúlín (sykursýki)
      • Varnarfrumur ráðast á liðina og valda bólgu stirðleika og verkjum (gigt)

Hreinsistöðvar líkamans
  • Úrgangsefni eru fjarlægð með blóði og vessa en losuð úr líkamanum á mismunandi vegu
    • Lungun losa koltvíoxíð
    • Nýrun og lifrin fjarlægja meginhluta úrgangsefna úr blóðinu
      • Nýrun sía úrgangsefni og vatn úr blóðinu
        • Meginhluti vatnsins er tekinn aftur upp í blóðið og Þá er örlítið vatn og úrgangsefni eftir sem mynda Þvag
        • þegar blóðið hefur verið hreinsað í nýrunum fer það aftur í blóðrásina
        • þvagið berst í Þvagpípurnar og í Þvagblöðruna Þar sem Það geymist
        • Frá Þvaðblöðrunni er Þvagrásin en efst í henni er hringvöðvinn
          • þegar maður slakar á honum rennur Þvagið út um Þvagrásina
        • Nýrun sjá til Þess að hæfilegt magn af steinefnum og vökva sé í líkamanum
          • þau sleppa mismiklum vökva út með Þvagi
          • Magn vökva í líkamanum hefur áhrif á blóðÞrýsting
            • Ef blóðÞrýstingur er of lágur Þá framleiða nýrun minna       Þvag
  • þvagpróf eru góð til Þess að greina sjúkdóma
    • bakteríur = sýking í Þvagfærum, sykur = sykursýki, prótín = nýrnasjúkdómar
  • Til eru margir nýrnasjúkdómar, ólíkir að hættustigi
    • Nýrnasteinar eru steinar sem myndast í nýrum
      • smáir skolast burt en stóra Þarf að brjóta með hljóðbylgjum
    • þegar nýrnabilun verður og nýrun hætta að starfa Þarf að tengja sjúklinginn við gervinýru sem hreinsa blóðið í ferli sem kallast blóðskilun
      • Einnig eru nýrnaígræðslur gerðar
  • Lifrin er stærst innra líffæri líkamans og vegu um 1.5 kg í fullorðnum manni
    • Lifrin fjarlægir skaðleg efni úr blóðinu og umbreytir Þeim
    • framleiðir gall sem losar líkamann við sum efni
      • brýtur niður blóðrauðann og setur í gallið
        • veldur rauðbrúnum lit hægða
    • geymir orkurík efni
      • breytir glúkósa í glýkógegn og geymir til betri tíma
      • Geymir einnig næringarefni s.s. Vítamín og járn
    • Lifraskaði orskakast helst af áfengisneyslu
      • Skorpulifur orsakast af mikilli áfengisneyslu og er alvarlegur sjúkdómu
        • Lifrin hættir nánast alveg að starfa
      • Lifrarskaði orsakast einnig af sýklum sem valda lifrarbólgu
        • Veldur verkjum og gulu
          • Gula er Þegar ýmis litarefni verða eftir í blóðinu í stað Þess að fara með gallinu og húðin verður Þá gulleit
        • Hægt að fá bólusetningu gegn lifrarbólgu

    Glósur
    4. kafli

    Húðin er stærsta líffæri líkamans
    • Húðin
      • vegur um 5 kg og yfirborðið er 1,5 – 2 m² á fullorðnum manni
      • Hefur ýmis hlutverk
        • verndar líkamann gegn hnjaski, sólargeislun og ýmsum efnum
        • Skynjar sársauka
        • Á Þátt í að stjórna líkamshitanum og vökvajafnvægi
      • Skiptist í 3 lög
        • HúðÞekjan
          • Ysta lag húðarinnar
          • Þunnt lag, venjulega 0,1 mm
            • á iljum og í lófum Þó um 1 mm
          • Hornlagið er allra, allra yst
            • það er örÞunnt
            • gert úr dauðum hárfrumum úr hyrni
              • sama efni og hár og neglur eru úr
            • Verndar, gerir húðina vatnshelda & ver gegn veirum & bakteríum
          • Vaxtarlagið myndar nýjar frumur fyrir hornlagið
            • hver fruma lifir í um 4 vikur áður en hún flagnar af
          • Litfrumur í húðÞekjunni vernda erfðaefnið í frumukjörnunum gegn geislum sólar
            • Freknur koma þegar litarefnð dreifist misjafnt
        • Leðurhúðin
          • lagið undir húðÞekjunni
          • 1 – 4 mm á Þykkt
          • mjög teygjanleg vegna teygjanlegra Þráða sem eru Þar
            • teygjanleiki minnkar með tímanum og við fáum hrukkur
            • Reykingar og sólböð minnka teygjanleika
          • Æða- & taugarík
          • Fitu- & Svitakirtlar eru Þar
            • Fitukirtlar gefa frá sér fitu
              • smyrja og mýkja húðina
            • Svitakirtlar láta svita frá sér út um svitaholurnar
              • Svitinn er helst vatn og steinefni og er lyktarlaus
                • Lykt kemur Þegar svitinn kemst í snertingu við húðbakteríur
        • Undirhúðin
          • Geymir vatn & meginhluta fitu líkamans í fitufrumunum
            • Myndar mjúkt, einangrandi lag sem ver okkur gegn höggum og kulda
    • Neglur og hár er búið til úr hyrni
      • Neglur
        • Frumurnar fjölga sér við rótina og vaxa fram
        • Lengist um 0,5 – 1 mm á viku
      • Hár
        • vex frá frumum í hárrótinni
        • Maður missir um 100 hár á hverjum degi
          • Í stað Þeirra vaxa ný á sama stað
        • Hvert hár vex um 1 cm á mánuði
          • vex í 2 – 5 ár áður en Það losnar
        • Í hárrótinni myndast litarefni sem ákvarðar litinn
        • Lögun hársekkjanna ákvarðar hvort hárið sé krullað eða slétt
    • Svitamyndun er leið líkamans til að stjórna líkamshitanum
      • Svitinn gufar upp og tekur um leið varma frá líkamanum
      • Á hverjum sólarhring myndast u.Þ.b. 1 lítri af sólarhring en mikið meira ef við hreyfum okkur
    • Æðarnar í húðinni eiga einnig Þátt í líkamshitastjórnun en æðarnar víkka Þegar líkaminn er heitur og Þá flæðir meira blóð um húðina og hún losar sig við meiri varma
      • Æðarnar Þrengjast við kulda og varmatap minnkar
      • Einnig rísa hárin við kulda og mynda einangrandi loftlag næst húðinni
    • Bólur og exem eru algengir húðkvillar
      • Bólur myndast Þegar rásir fitukirtla lokast vegna tappa
        • gröftur kemur ef sýking kemst í tappann eða bólan opnast
        • Kynhormón auka myndun fitu í fitukirtlum
      • Exem stafar af bólgu í húðinni sem verður rauð og Þrútin
    • Sortuæxli er hættulegasta tegund húðkrabbameins
      • kemur aðallega af of miklum sólböðum
        • Myndast einnig í litfrumum í fæðingarblettum
    • Þegar fólk brennur í sól skaðast einungis húðÞekjan en ef maður brennir sig á vatni getur leðurhúðin skaddast
      • þá missir líkaminn vökva og hætta er á sýkingu
      • Bruni frá eldi eða rafmagni er oft lífshættulegur
    Beinagrindin veitir líkamanum styrk og verndar hann
    • Beinagrindin inniheldur rúmlega 200 bein
      • er um fimmtungu líkamsÞyngdarinnar
      • Verndar mikilvæg líffæri
      • Kalk, fosföt og önnur mikilvæg steinefni eru geymd í beinunum
        • Hægt að flytja til blóðsins og öfugt eins mikið og Þarf
      • Mörg mismunandi bein eru í beinagrindinni
        • löng, pípulaga bein kallast leggir
        • Flöt bein má finna í herðarblöðum, mjöðminni og í höfuðkúpunni
        • Í úlnliði og handarbaki eru stutt, teningslaga bein
        • Hryggjarliðirnir hafa óreglulega lögun
      • Bein eru bæði létt og sterk
        • Þau eru hörð að utan en mjúk að innan
        • Inn í beinunum er bæði rauður og gulur beinmergur
          • Í rauða beinmergnum myndast öll rauðkorn og hvítkorn
          • guli beinmergurinn er helst fita
        • Beinhimna er utan um beinin og Þar eru taugar og æðar sem sjá beininu fyrir næringarefnum
        • Bein endurnýjast stöðugt
          • þegar frumur deyja Þar koma nýjar í staðinn
          • Bein hafa bæði frumur sem byggja upp beinvefinn og frumur sem brjóta hann niður
          • Á einu ári endurnýjast 1/10 af efni beinanna
      • Liðir eru milli margra beina í líkamanum
        • gera beinum kleift að hreyfast hvert gegn öðru
        • Endar beinanna eru klæddir verndandi brjóski
        • Liðurinn inniheldur vökva sem smyr núningsfletina
        • Margar gerðir liða eru til
          • Kúluliður
            • beinin hreyfast í allar áttir
            • t.d. mjaðmaliður
          • Hjöruliður
            • Beinin hreyfast eins og hjarir
            • T.d. fingur og tær
          • Hverfiliður
            • Beinin snúast hvort gegn öðru
            • bara í hringi
      • Bein í fullorðnu fólki er brothættari
      • Ef bein brotnar Þarf að setja gifs og stundum jafnvel negla saman
      • Hryggurinn er úr rúmlega 30 hryggjarliðum
        • bera uppi og styrkja líkamann
        • Milli Þeirra eru hryggÞófar sem gefa eftir við högg og álag
          • geta skaddast ef við lyftum of miklu
          • þá getur hryggÞófi gengið út milli hryggjarliðanna og Þrýst á taug
            • það kallast brjósklos og veldur bakverkjum
            • má lækna með skurðaðgerð



    Vöðvarnir hreyfa líkamann

    • Vöðvar eru um helmingur af Þyngd líkamans
    • þeir dragast saman og Þá hreyfum við okkur
    • 3 gerðir af vöðvum eru til
      • rákóttir vöðvar
        • eru um 600
        • eru fastir á beinum
        • við getum stjórnað Þeim
        • eru festir á bein með sinum
      • sléttir vöðvar
        • við getum ekki stjórnað Þeim
        • eru t.d. í meltingarveginum
        • geta haft áhrif á blóðÞrýstin með Því að víkka eða Þrengja æðarnar
      • hjartavöðvi
        • Við getum ekki stjórnað honum
        • myndar sjálfvirk rafboð
          • stjórna samdrætti hjartans
    • Beygjuvöðvar og réttivöðvar eru rákóttir vöðvar sem hreyfa liðamót og vinna alltaf saman
      • Annar dregst saman, hinn slaknar og öfugt
      • Festast á bein sitt hvoru megin við liðamót með sterkum sinum
      • Þótt við séum kyrr er fjöldi vöðva virkur
    • Rákóttir vöðvar eru úr mörgum vöðvaÞráðum sem eru í vöðvaknippi
      • hver Þráður er ein fruma
        • innan við 0,1 mm á breidd
        • eru allt að 30 cm á lengd
        • hver fruma inniheldur granna prótínÞræði sem geta dregist saman
      • Meðfram frumunum liggja margar æðar sem sjá vöðvanum fyrir súrefni og   glúkósa
        • bruni á glúkósa eða fitu fer fram Þar með hjálp súrefnis
    • Þol mælir hve lengi vöðvar okkar geta starfað
      • helst undri Því komið hve mikið súrefn Þeir geta tekið úr blóðinu
      • Þjálfun veldur Því að vöðvarnir geta tekið meira súrefni upp
        • Hvatberum fjölgar verulega
          • hvatberar eru orkuver vöðvafrumanna
          • Bruninn fer fram í hvatberunum
    • Mjólkursýra myndast Þegar vöðvar verða fyrir súrefnisskorti vegna of mikillar vinnu
      • þegar mjólkursýra myndast súrna vöðvafrumurnar
        • við Þreytumst og fáum verk í vöðvann
      • Ef vöðvarnir hvílast fá Þeir súrefni og mjólkursýran hverfur
    • Harðsperrur koma Þegar vöðvinn hefur unnið mikið og lengi
      • þá skaddast vöðvafrumurnar tímabundið
      • Sársauki kemur vegna efna sem fara úr skemmdu frumunum og erta taug